to bite grass in a sculpturegarden

Að bíta gras í skúlptúrgarði (2026)
einkasýning – innsetning – skúlptúr
Höggmyndagarðinum á Nýlendugötu 17a, Reykjavík. 

 

 To bite grass in a sculpturegarden (2026)  in the Sculpture Garden in Reykjavik, Iceland 

 

Sýning Katrínar Ingu Katrínar (Jónsdóttir Hjördísardóttir) Að bíta gras í skúlptúrgarði í Höggmyndagarði Myndhöggvarfélags Reykjavíkur á Nýlendugötu fjallar um sambandið milli falls og endurreisnar. Í miðjum garðinum stendur hóll. Undir honum hefur listamaðurinn grafið verk sín, eins og þau séu bæði fórn og varðveisla, eitthvað sem þarf að fela en um leið eitthvað sem má ekki glatast.

Hóllinn minnir á gamla ruslahauga, þegar fólk losaði sig við hluti með því að grafa þá eða safna þeim saman þar til þeir urðu hluti af landslaginu. Það sem áður var úrgangur verður með tímanum að jarðlagi, sögu og minnismerki. Þannig verður haugurinn ekki aðeins tákn um förgun, heldur líka um umbreytingu: það sem við reynum að losna við heldur áfram að vera til, undir yfirborðinu.

Á veggnum fyrir aftan hólinn er speglamósaík. Spegillinn vísar til þess að horfa á sjálfan sig í gegnum umhverfið. Hann margfaldar rýmið og býr til tilfinningu fyrir óendanleika, eins og brot úr alheimi eða stjörnubrot úr stærri heild. Í speglinum birtist einnig brotin sjálfsmynd, sjálf sem hefur sundrast en er samt púslað saman aftur. Hvert brot endurspeglar annað sjónarhorn, aðra útgáfu af manneskjunni, aðra vídd.

Titillinn Að bíta gras vísar í að deyja, falla eða tapa. En í þessari innsetningu verður fallið ekki endapunktur. Það verður dramatískt augnablik, uppgjör við ósigur og við það sem hefur orðið of þungt að bera. Að grafa verkin er því bæði sorgar athöfn og ákvörðun. Það er leið til að grafa fortíðina, en ekki til að eyða henni. Leggja hana í jörðina svo eitthvað annað geti sprottið upp. En titillinn ber líka í sér aðra merkingu: að komast í beina snertingu við jörðina, að vera samofin skúlptúr garðinum – svæði sem helgað er list, einskonar ástarsamband. Að bíta grasið er ekki aðeins ósigur heldur einnig eins konar samruni. Líkaminn, verkin og landslagið renna saman. Það sem fellur til jarðar hverfur ekki endilega, heldur verður að einu með umhverfinu.

Verkin undir hólnum fela í sér togstreitu. Þau eru afrakstur vinnu, tíma, fjárfestingar og trúar listamannsins á eigið starf. Samt geta þau orðið byrði, efnisleg og andleg, eitthvað sem skapar vandamál og kallar á förgun. Í þessari togstreitu birtist kjarninn í sýningunni: hvernig á að sleppa takinu á því sem maður hefur lagt allt sitt í? Hvernig er hægt að tapa án þess að hverfa? Hvernig er hægt að grafa eitthvað og varðveita það á sama tíma?

Að bíta gras í skúlptúrgarði er því ekki aðeins sýning um dauða eða ósigur. Hún er líka sýning um endurbyggingu. Um að gefa eftir, horfast í augu við brotna sjálfsmynd og púsla henni saman aftur. Hóllinn verður gröf, ruslahaugur, minnismerki og möguleiki í senn. Undir yfirborðinu liggur fortíðin, en yfir henni vex nýtt landslag.

Sýningin er styrkt af Starfslaunasjóði Listamanna og Reykjavíkurborg

Join us for the opening of the exhibition To bite grass in a sculpturegarden by Katrin Inga Katrína  (Jonsdottir Hjordisardottir) in the Sculpture Garden on the 17th of June 4PM. 

Katrín Inga Katrín’s (Jónsdóttir Hjördísardóttir) exhibition To bite grass in a Sculpture Garden at the Reykjavík Sculpture Society’s Sculpture Garden on Nýlendugata deals with the relationship between fall and restoration. In the middle of the garden stands a mound. Under it, the artist has buried his works, as if they were both a sacrifice and a preservation, something that must be hidden but at the same time something that must not be lost.

The mound is reminiscent of old garbage dumps, when people got rid of things by burying them or collecting them until they became part of the landscape. What was once waste becomes, over time, a layer of soil, history and a monument. In this way, the mound becomes not only a symbol of disposal, but also of transformation: what we try to get rid of continues to exist, beneath the surface.

On the wall behind the mound is a mirror mosaic. The mirror refers to looking at oneself through the environment. He multiplies the space and creates a sense of infinity, like a fragment of a universe or a star fragment from a larger whole. The mirror also reveals a broken self, a self that has been shattered but is still being pieced back together. Each fragment reflects a different perspective, a different version of the person, a different dimension.

The title To bite grass in the Sculpture Garden refers to dying, falling or losing. But in this installation, the fall does not become an end point. It becomes a dramatic moment, a reckoning with defeat and with what has become too heavy to bear. Burying the works is therefore both an act of mourning and a decision. It is a way of burying the past, but not of erasing it. Putting it in the ground so that something else can spring up. But the title also carries another meaning: to come into direct contact with the earth, to be intertwined with the sculpture garden – an area dedicated to art, a kind of love affair. Biting the grass is not only a defeat but also a kind of fusion. The body, the works and the landscape merge. What falls to the ground does not necessarily disappear, but becomes one with the environment.

The exhibition is supported by the Icelandic Art Salary and the City of Reykjavik