Fótón tilfinninga í línulegu tómu rúmi = tómarúm (2026)

neon ljós og málmur 

einkasýning gallery SIND

 

Photon sensations in linear empty space = vacuum (2026)

neon light led & metal

solo exhibition in gallery SIND

 

Ljós er eitt af grundvallar fyrirbærum alheimsins. Það er aðlaðandi úr öllum áttum og merking þess er nær óendanleg, oft tengd von, vitund og jákvæðu samhengi. Ljós ferðast alltaf finnur sér leið, hvort sem við skynjum það eða ekki. Á svipaðan hátt hreyfast tilfinningar okkar; þær eru ekki alltaf sýnilegar, ekki alltaf temjanlegar, en þær eru raunverulegar og áhrifaríkar. Mjög svo abstrakt. 

Ljósið í verkum sýningarinnar er sett í samhengi við tilfinningar, innsæi og skynjun. Tilraunin til að sýna hið ósýnilega áþreifanlegt: orkuna, sveifluna, ástandið milli okkar. Í skammtaeðlisfræði er ljósið bæði bylgja og eind; tvíræðni sem ögrar hefðbundnum skilningi á raunveruleikanum. Á sama hátt er tilfinning bæði huglæg og efnisleg hún mótar hegðun, ákvarðanir og rýmið á milli okkar.

Verkin endurspegla þá hugmynd að allt sé tengt og að skynjun okkar sé virkur þátttakandi í því sem verður til. Hér er vísað til hugmynda Karen Barad um Agential Realism, þar sem heimurinn er ekki safn aðskilinna hluta heldur ferli, tengsl og samverkan. Raunveruleikinn verður til í athöfninni sjálfri.

Skúlptúrarnir eru unnir úr málmi og 360° neon-LED ljósa slöngum. Þeir mynda abstrakt, línulegar teikningar í rými einskonar lágmyndir, veggverk og skúlptúra á vegg. Þar sem ljósið teiknar ekki aðeins form heldur ástand í abstrakt tilfinningalegu samhengi. 

Þakklæti til ljóssins.
Þakklæti til tilfinninga.

Rýmislegt þakklæti.

orku bilið á milli mín og þín
á milli okkar og verka = listaverka
neikvæð hleðsla – aðstæður ráða
jákvæð hleðsla – aðstæður ráða
skammta losun + á ábyrgð minnar
efnið sem ég dæli í þig
efnið bæði leiðir og einangrar
á ljóshraða…

á ljóshraða…

Light is one of the fundamental phenomena of the universe. It is compelling from every direction, and its meaning is nearly infinite, often associated with hope, awareness, and positive contexts. Light always travels; it finds its way, whether we perceive it or not. In a similar way, our emotions move as well. They are not always visible, not always controllable, yet they are real and influential. Highly abstract.

The light in the works of this exhibition is placed in dialogue with emotion, intuition, and perception. An attempt to make the invisible tangible: the energy, the vibration, the state between us. In quantum physics, light is both a wave and a particle—a duality that challenges conventional understandings of reality. In the same way, emotion is both subjective and material; it shapes behavior, decisions, and the space between us.

The works reflect the idea that everything is interconnected and that our perception is an active participant in what comes into being. Reference is made here to Karen Barad’s concept of Agential Realism, in which the world is not a collection of separate objects but a process, relationships, and interaction. Reality emerges in the act itself.

The sculptures are made of metal and 360° neon LED light tubes. They form abstract, linear drawings in space—something like reliefs, wall pieces, and wall-mounted sculptures. Here, light does not merely draw form but a state, within an abstract emotional context.

Gratitude to the light.
Gratitude to emotions.

Spatial gratitude.

the energetic gap between me and you
between us and the works = artworks
negative charge – circumstances prevail
positive charge – circumstances prevail
quantum discharge + my responsibility
the substance I inject into you
the substance both conducts and insulates

at the speed of light…

Gengisfelling tilfinninganna

Tilfinningar eru kaldar – skynsemishyggja er hot. Tilfinningasemi, samhygð, mildi, og heiðarleiki er út – kaldhæðni, staðreyndir, stöðumat, tölfræði og Excel er inn. Sellur eru inn. Kommur er inn. Hús og skjól. Vinátta og ást. Sannleikur, friður og losti. Allt út. Blik í auga er út. Raddblær er kaldur – eintóna er hot.
Svipbrigði eru köld. Doði er hot. 

Ein af grundvallarkenningum Pierre Bourdieu snýr að gengisfellingu menningar í samræmi við vinsældir hennar. Þannig er það sem almúginn hrífst af ódýrt, en það sem börgessarnir digga dýrt. Því exklúsívara, því dýrara. Undanfarin 15 ár hafði samfélagið gengið í gegnum opinberunarbyltingu. Ofbeldi var rifið úr þögninni, kynfrelsi varð meginstraums, mildi, nærgætni og umburðarlyndi sjálfsagt mál í samskiptum. Það þótti betra að læra um aðra, setja sig í spor þeirra, í stað þess að hafna veruleika þeirra og upplifunum. Nú er risið gegn þessari þróun með þeim vopnum sem harkan ein ræður yfir. 

Keyrð áfram af auðmönnum og vonbiðlum þeirra er kalda skynsemishyggjan komin til að útrýma kenndum og mannúð. Gersneiða samfélagið af gengisfelldum tilfinningum. Hafna meginstraums meðlíðan.  

En tilfinningar eru ekki andstaðan við rökhyggjuna. Þær eru rafboð og efnasambönd sálar og líkama. Þær eru það raunverulegasta við mennskuna og það sem stýrir hverri einustu sekúndu sem við lifum. Að vera tilfinningasamur er að vera á lífi. 

Á þessari sýningu tengir Katrín Inga tilfinningar við hið viðurkennda form raunveruleikans – eðlisfræði og eindir. Sellur, kommur og kenndir. Þannig opinberar hún raunveruleika tilfinninga og virði þeirra. Hversu seigar tilfinningarnar eru í líkömum okkar og getu þeirra til að lifa af þegar allt annað er farið.
Ef ekkert er eftir nema atómið, þá eru samt til atóm tilfinninganna. 

Ef kalda skynsemishyggjan ætlar sér að útrýma samkennd og hlýju útrýmir hún sjálfri sér um leið. Því andstyggðin er líka tilfinning og trú mín á því að atóm ástarinnar sé stærra en atóm hatursins ekkert nema trú úr öðrum atómum. Fóton trúar á ljóshraða. 

-Snærós Sindradóttir

Devaluation of Emotions

Emotions are cold — rationalism is hot. Sentimentality, empathy, gentleness, and honesty are out — irony, facts, status reports, statistics, and Excel are in. Cells are in. Commas are in. Home and shelter. Friendship and love. Truth, peace, and desire. All out. A glint in the eye is out. Tone of voice is cold — monotony is hot. Facial expressions are cold. Numbness is hot.

One of Pierre Bourdieu’s fundamental theories concerns the devaluation of culture in relation to its popularity. What appeals to the masses is cheap, while what the bourgeoisie favor is expensive. The more exclusive, the higher the value. Over the past fifteen years, society has undergone a revolution of revelation. Violence was pulled out of silence, sexual freedom became mainstream, and gentleness, care, and tolerance became self-evident in human interaction. It was considered better to learn about others, to place oneself in their position, rather than to reject their realities and lived experiences. Now there is a backlash against this development, wielding the only weapons hardness knows how to use.

Driven forward by the wealthy and their aspirants, cold rationalism has arrived to eradicate emotion and humanity. To carve society down with devalued feelings. To reject mainstream compassion.

But emotions are not the opposite of reason. They are electrical impulses and chemical compounds of soul and body. They are the most real thing about being human and what governs every single second we live. To be emotional is to be alive.

In this exhibition, Katrín Inga connects emotions to the accepted form of reality — physics and particles. Cells, commas, and feelings. In doing so, she reveals the reality of emotions and their value. How resilient emotions are within our bodies, and their capacity to survive when everything else is gone. If nothing remains but the atom, there are still atoms of emotion.

If cold rationalism sets out to eliminate empathy and warmth, it eliminates itself at the same time. For disgust is also an emotion, and my belief that the atom of love is greater than the atom of hatred is nothing but belief made of other atoms. A photon of faith at the speed of light.

-Snærós Sindradóttir